mánudagur, október 29, 2007

Meiðslin okkar

Þetta er nú alveg fáránleg óheppni hjá okkar mönnum. 2 af þeim sem komu aftur inn í liðið eftir meiðsli eru meiddir aftur. Og hvorugur með sömu meiðslin. Hversu óheppnir getum við orðið.

Hver ætli verði í miðjunni um næstu helgi? Ef það eru Momo þá er illt í efni. Ég vil fara að losna við hann úr liðinu. Hann missir boltan alltof oft og nær mjög sjaldan að klára sendingarnar sínar. Hann er góður og tækla menn og ná af þeim boltanum, en síðan gefur hann andstæðingunum bara bolta aftur eins og ekkert sé sjálfsagðara. Annaðhvort þarf hann að fara að bæta sig eða við þurfum að losa okkur við hann. Þetta gengur ekki svona.

Annað í fréttum er að ég er á leiðinni til Íslands... mjög stutt viðkoma að vísu, en samt. Ég kem á föstudagsmorgun og fer aftur á Sunnudags eftirmiðdegi. Ég kem til með að gista hjá Mömmu og Pabba í verkalýðsíbúðinni.

sunnudagur, október 28, 2007

Þið 13 sem að kusu

Aðeins 1 af þeim sem að tóku þátt í skoðunarkönnuninni hafði rétt fyrir sér. En ég vil heyra frá ykkur öllum um hvernig ykkur fannst leikurinn?

Ég er persónulega fúll þar sem að, þó svo að Arsenal hafi verið betra liðið, þá fannst mér markið frekar ódýrt sem þeir skoruðu. Ég er ennþá fúlari yfir að vera í sjötta sæti núna.

ANDSKOTINN

Djöfull munaði litlu!

Svo sem sanngjarnt, en samt... mjög svekkjandi. A.m.k. skoraði Hyypia ekki sjálfsmark. En Torres og Alonso aftur meiddir... þetta er ekki nógu gott.

Ég spái því núna að Arsenal muni vinna deildina, en Liverpool verður í 3ja aftur.

Hálfleikur

Það er hálfleikur hjá Liverpool og Arsenal og staðan er 1-0 fyrir okkur. Gerrard skoraði glæsilegt mark á sjöundu mínútu og síðan hefur Arsenal spilað mjög vel og næstum búin að jafna a.m.k. tvisvar. Torres byrjaði inná en það lítur út fyrir að hann fara út af í hálfleik með meiðsli. Þá fáum við Crouch inná. Ekki verra... öðruvísi, en ekki verra.

Áfram Liverpool og vonandi náum við að halda þetta út.

YOU WILL NEVER WALK ALONE.

fimmtudagur, október 25, 2007

Liverpool

Það hefur gengið upp og ofan hjá Liverpool þessa dagana. Við erum búnir að tapa 2 leikjum í meistaradeildinni þetta árið og ekki hefur gengið nógu vel í deildinni heldur. Við erum að vísu ósigraðir þar ennþá, en sitjum sem fastast í 4ja sæti og virðumst ekki geta komið okkur upp úr því. Núna er líka farið að tala um að Rafael Benitez sé í hættu með starfið sitt.

Mín skoðun er sú að við eigum ekki að reka Benitez, heldur vera fegnir því að við gætum fara úr meistaradeildinni þetta árið. Af hverju ekki? fyrir utan peninga spursmálið þá er það bara gott. Við getum þá einbeitt okkur frekar að deildinni sjálfri og kannski loksins unnið hana. En þá verðum við líka að sigra Arsenal á sunnudaginn. Annars getum við bara gleymt þessu. Ef við getum ekki unnið leiki okkar á Anfield, þá er úti um von okkar að sigra deildina.

Þannig að leikurinn á sunnudaginn er orðinn mjög mikilvægur og getum við aðeins vonað að Agger, Torres og Alonso verða orðnir tilbúnir fyrir hann, jafnvel Kewell sem varamaður. Með endurkomu þessara manna hef ég fulla trú á okkur, annars verður þetta orðið mjög erfitt og jafnvel ómögulegt.

ps. ég varð bara aðeins að spjalla um Liverpool, þar sem enginn sem ég þekki hérna í USA getur spjallað við mig um þetta málefni.

þriðjudagur, september 25, 2007

Hef ekkert að blogga um...

Já, það er rétt. Ég hef ekkert að segja. Það hefur ekkert merkilegt gerst síðan síðast. Við buðum Eggerti og Ásu í mat um helgina og var það frábært kvöld. Ég drakk kannski aðeins of mikið og var nokkuð þunnur daginn eftir, en maturinn heppnaðist vel og við skemmtum okkur öll vel. Á sunnudaginn fór Andrea á vínsmökkunar hátíð með nýrri vinkonu sinni, henni Mo Sanister. Var það mjög skemmtilegt skv henni. Ég og Krissi fórum á Chuckí Cheeses á meðan. Ég hefði nú frekar viljað vera á vínsmökkunarhátið... en whatever. Síðan um kvöldið fórum við út að borða með Mo og Tim. Fórum á Olvie Garden...

Eins og ég sagði.... ekkert merkilegt :)

þriðjudagur, september 18, 2007

Afmæliskveðja



Selma systir mín er 40 ára í dag, 19. september. Elsku Selma, takk kærlega fyrir frábært sumar og við vonum innilega að dagurinn verði mjög sérstakur fyrir þig.

Vonumst til að sjá þig og fjölskylduna þína fljótlega hérna í Jörsí.

Kær kveðja,

Elmar, Andrea og Kristófer.

mánudagur, september 17, 2007

Eldfluga



Kristófer er kominn með eldflugu. Þessi sími er mjög einfaldur og hafa foreldrar algjöra stjórn á því hvaða númer hann getur hringt í . Það eru takkar þarna til að hringja í mömmu og pabba og svo má hafa allt að 20 númer í símaskránni. Við ákváðum að gefa honum þetta eftir vesenið með skóla-rútuna fyrsta daginn í skólanum.

Strax fyrsta daginn hringdi hann í mig þegar hann var á leiðinni heim í rútunni og ÖSKRAÐI í símann... "I AM OK". En við vorum búin að segja honum að þetta væri eingöngu til að róa okkur niður þegar hann lendir í svona fíaskói aftur :)

En síðan þá er hann ekki að hringja nema eitthvað komi uppá. Einu sinni var það að ég kom of seint út á stoppistöðina og var ekki þarna þegar hann kom út, þá hringdi hann í mig til að athuga hvar ég væri og það er gott að vita af þessu tæki með honum, bara svona just in case.

Annars var helgin róleg í þetta sinn. Við fórum í bíó á laugardaginn og sáum "I now Pronouce you Chuck and Larry" sem kom skemmtilega á óvart og var mikið hlegið. Kristófer spilaði fótbolta á bæði laugardaginn og sunnudaginn, vann á sunnudaginn 4-3 en tapaði sínum fyrsta leik á sunnudaginn 2-4. En ég er viss um að 2 leikmenn í sigurliðinu hafi verið a.m.k. 12 ára :)

Á Sunnudaginn var ég líka rúma 5 tíma að taka bílskúrinn í gegn og var ég mjög feginn þegar það var búið. Kristófer hjálpaði mér eftir bestu getu, en honum fannst nú skemmtilegra að vera í eldhúsinu með mömmu sinni að hjálpa henni að baka sjónvarpsköku... enda ekki nema von.

fimmtudagur, september 13, 2007

Mjög Sætt


Þessi tvö eru mjög sæt saman. Ebony and Ivory.
Andrea rakst á þessa frétt og fannst að við þurftum að deila henni með ykkur, ég er sammála því. Skoðið fréttina

mánudagur, september 10, 2007

Góð Helgi

Síðast helgi var mjög skemmtileg. Á laugardaginn byrjaði fótboltinn hjá Kristóferi, hann stóð sig príðilega og var aftasti maður í vörninni í 2 leikhluta, á miðjunni 1 og í marki 1 leikhluta. En leikirnir hérna skiptast upp í fjóra 15 mínuta leikhluta. Liðið hans vann 4-0 og er hann strax kominn með 1 fleiri sigur en í fyrra þegar liðið hans tapaði hverjum einasta leik.
Síðan var farið í smá rúnt og keypt í veisluna sem ætluðum að halda á Sunnudaginn. Og þá var komið að því að sjá Íslendingana tapa ærlega fyrir Spánverjunum... en viti menn, við áttu alveg erindi þarna í leiknum og stóðu strákarnir sig vel. Ekki var það nú verra að 1 þeirra (Xabi Alonso, liverpool maður) var rekinn af velli á 20mín. Eftir það var eins og við hefðum fengið vítamínssprautu í rassinn og við náðum að skora. Öll fjölskyldan hérna fagnaði eins og við höfðum unnið HM.. a.m.k. EM :) En síðan datt liðinu í hug að reyna að verja bara í síðari hálfleik... það voru nú mistök. Enda náðu Spánverjarnir að jafna þegar aðeins 4 mín voru eftir... mikil synd það.
Á sunnudaginn var næsti leikurinn hjá Kristóferi og náðu þeir að vinna aftur, 4-1... glæsileg byrjun á leiktímabilinu :) Seinna um daginn héldu við svo grill veislu og heppnaðist hún mjög vel. Fengum 2 fjölskyldur í heimsókn, börnin voru úti að leika sér fram að mat og skemmtu sér konunglega. Síðan eftir mat var komið að fullorðna fólkinu og lékum við okkur í leikjatölvum, eða sátum úti á svölum að drykkju. Þetta var mjög gaman allt saman, og alveg frábær matur hjá Andreu, eins og vanalega. :)
Hvernig var helgin hjá ykkur?