miðvikudagur, júlí 27, 2005

Nýja íbúðin okkar

Þetta er mynd af nýju íbúðinni okkar. Þetta er reyndar raðhús og er mjög skemmtilega hannað. Það er á 3 hæðum. Efsta hæðin er með 2 svefnherbergi, bæði mjög stór og með sér klósetum og STÓRUM skápum. Einnig eru þvottavél og þurrkari á milli herbergaja tveggja.
Á miðhæðinni er að finna stórt og gott Eldhús þar sem hægt er að koma fyrir litlu borði og stólum, til að borða morgunmat. Síðan er þar líka stór stofa, borðstofa og gesta-klóset. Tvennar svalir eru á miðhæðinni, báðar frekar stórar. Síðan er neðsta hæðin með tvöföldum bílskúr og stóru herbergi sem verður í senn skrifstofan mín, og gesta-herbergi. Og af neðstu hæðinni er innangengt frá garðinum. Með húsinu fylgir aðgangur að sundlaug.

Húsið er mjög nálægt matvörubúðinni Shop-Rite, og verður hægt að ganga í búðina án þess að fara yfir götur.

Við erum búin að skrifa undir leigusamninginn og ætlum að flytja þangað helgina 19-22 Ágúst.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta verður aldeilis fínt hjá ykkur. TIL HAMINGJU. Andrea....þá er síðan bara að fara að sauma fyrir alla 14 gluggana hahahahahaha, skemmtu þér vel ;)

Kv, Fanney