þriðjudagur, október 28, 2003

Lífið gengur sinn vanagang þessa dagana, Vinna, sofa, éta.. með smá golfi, tennis og bjór hingað og þangað. Hafnarboltaliðið okkar, Florida Marlins, er búið að vinna keppnina þetta árið, en þeir eru titlaðir núna World Champions, eins og Íslensku fótboltaliðin verða heimsmeistarar á Íslandi :) Það er nú samt mikil stemming í kringum það allt saman. Við strákanir horfðum á leikinn um helgina, en það var sá sjötti, en þeir spila best af 7. Marlins unnu þann leik og unnu samtals 4-2 í leikjum. Það voru heilmikil fagnaðarlæti við þetta og það sem er best að leikurinn fór fram í NY þar sem Marlins var að spila við Yankees og unnu þá. Á meðan við fylgdumst með leiknum þá ákváðu stelpurnar að skella sér út á lífið og kíktu niður í “miðbæ” Delray Beach. Þar var margt um manninn og eflaust margir að fagna sigri Marlins. Að sannri íslenskri hefð voru þær seint á ferðinni, þannig að ekki var stoppað lengi en að þeirra sögn skemmtu þær sér vel. Högni er að fá foreldrana sína í heimsókn á morgun og verða þeir í einhvern tíma, ekki viss hve lengi samt. Gulli er að koma til baka frá Fíladelfíu á laugardaginn og er planið að fara í Golf á sunnudaginn, allir 6. Það verður skrautlegt :)

þriðjudagur, október 21, 2003

Er ég sit hérna á svölunum og er að vinna á þráðlausa netinu, í 29 stiga hita, þá getur maður ekki varist því að hugsa til þeirra sem eru á klakanum. Ég vildi bara segja að ég sakna ykkar allra og það eru allir velkomnir að gista hérna sem vilja koma í heimsókn. Við erum búin að vera nokkuð upptekin síðastliðnar vikur, ég er orðinn forfallinn golfari og reyni að fara á völlinn við hvert tækifæri. Bestu 18 holunar hinað til voru farnar á 91 höggi. Ég fer annaðhvort með Gylfa eða Högna, eða báðum. Konan er búinn að lofa mér golfsetti í jólagjöf þannig að í fyrsta skipti í langan tíma hlakkar mér til jólana vegna gjafana, ekki vegna góðs matar og fjölskyldu bara. Ég leigji mér bara sett í hvert sinn þangað til. Andrea er orðin skæð í tennis enda drífur hún sig núna á hverjum morgni um 8 í tennis með annaðhvort mér eða Essý. Hún er rosalega dugleg í þessu. Núna um síðustu helgi var fyrsti leikurinn hjá Kristófer í fótbolta og sem betur fer er ekki verið að telja mörkinn, því þá hefi hann tapað 6-0 held ég. Kristófer var samt áberandi bestur í liðinu sínu og stóð sig með príði, auðvitað ;) Kristófer er búinn að aðlagast svo vel að skólanum að hann er farinn að stríða bekkjarfélögunum sínum, hann hefur verið sendu í skammakrókinn tvisvar núna á stuttum tíma. Já, kaninn hefur ennþá skammarkrók, eða það sem hann kallar Time-Out. Við erum ekki mjög hrifin af því, en það er ekki víst mikið sem hægt er að gera í því. Ég er búinn að vera kvefaðu í 3 vikur samfleitt, það fylgir víst haustinu hérna, og það þarf ekki mikinn kulda til að verða kvefaður. Við Högni og Gylfi fórum í bíó í gær að sjá Runaway Jury, og við völdum bara eitthvað bíó og það vildi þannig til að við fundum, án efa, eitt versta bíóið á svæðinu. Tjaldið var ekki mikið stærra en breiðtjaldssjónvarp, hljóðkerfið var frá 1970, salurinn og bíóið í heild var ekki með loftkælingu, og salurinn lá fyrst niður á við og svo aftur upp. Án efa skrítnasta og lélegasta bíóið á svæðinu. En myndin var fín, málið fyrir mig var bara það að hún endaði með góðu plotti og ég vissi það allan tímann enda búinn að lesa bókina. Við erum búin að ákveða að nesta dreginn í skólanum, þar sem að hádegismaturinn er víst lítið annað en pizzur, hamborgarar og annað slíkt ruslfæði. Okkur fannst í byrjun mjög sniðugt að þessi þjónusta skyldi vera fyrir hendi, að fá heitann mat í skólanum, en þegar við sáum að það voru fastir pizzusósu blettir í öllum polo bolunum hans, og eina sem hann gat sagt að hann væri að fá í mat væru hamborgarar, pizzur og annað ruslfæði, fannst okkur þetta ekki vera eins sniðugt og það leit út fyrir að vera. Þegar við svo létum Mrs. Rodney vita að hann myndi hér eftir koma með sitt eigið nesti sagði hún, “I don´t blame you. The things they serve here!” Þannig að kennararnir eru líka að hneikslast á þessu fæði. Hmmm.. af hverju eru kanarnir svona feitir ?!?!

föstudagur, október 10, 2003

Á þriðjudaginn í síðustu viku fór ég með Fanney inn á Miami að hitta nokkrar íslenskar skvísur sem eru búsettar þar. Og það voru ekki tvær eða þrjár stelpur...heldur sex og hópurinn fer víst stækkandi! Það var ákveðið að þetta yrði mánaðarlegur viðburður, fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði. Já það er greinilega nóg af Íslendinum hérna. Við hittumst á stað sem heitir Houstons og hann er víst voða hip og trendí núna. Það hlýtur eigilega að vera því að við þurftum að bíða eftir borði í 2 tíma. Ég verð nú að segja fyrir mitt leyti að ég varð nú fyrir vonbrigðum þegar ég loksins fékk matseðilinn í hendurnar. Úrvalið var nú ekki upp á marga fiska. Eftir alla þessa bið og garnagaul pantaði ég mér salat...veiiii! En félagsskapurinn bætti þetta nú upp og við sátum þarna fram yfir miðnætti og spjölluðum. Ég kunni vel við allar stelpurnar og hlakka til að hitta þær aftur í næsta mánuði.

Sl. föstudagur byrjaði heldur snemma hjá okkur því að þann dag var farmers day (bænda dagur) í Orchard View (skólanum hans Kristófers) og af því tilefni var foreldrum boðið á söngskemmtun Kl. 07:30 um morguninn. Börnin sungu fyrir okkur nokkur lög og Kristófer gaf hinum börnunum ekkert eftir í söng og sprelli. Að því loknu var boðið upp á djús og bakkelsi. Mrs. Rodney og aðstoðarkona hennar höfðu báðar orð á því hversu eftirtektarsamur og duglegur hann væri og að þær hefðu aldrei kynnst barni sem tæki svona miklum framförum í ensku á svona stuttum tíma. Við foreldrarnir vorum við það að rifna úr stolti yfir litla unganum :).
Þennan sama dag voru Essý, Gylfi og synir að leggja af stað frá Íslandi.

Af því tilefni ákvaðum við að hafa smá móttöku hérna hjá okkur, á laugardaginn, þegar ferðalangarnir kæmu heim. Högni, Fanney og Hildur komu hingað um klukkan 11 um morguninn til að hlusta með okkur á beina útsendingu frá viðureign Íslands og Þýskalands (förum ekkert nánar út í þann leik :)). Gylfi og fjölskylda lentu kl 14 og við tókum á móti þeim með köldu pasta hlaðborði sem ég hafði matreitt kvöldið áður. Um kvöldið buðu Fanney og Högni okkur í heimsókn og Kristófer að gista. Essý lánaði okkur mjög skemmtilegt spil sem hún hafði keypt á Íslandi sem heitir Partý og co.