Össs...sumarið er komið með látum, raki, hiti og ógeðslegar pöddur á sveimi. Mér til ómældrar ánægju...eða þannig sko :o/
Ég pikkaði upp alveg hreint með afbrigðum ógeðfeldan "hitch-hiker" í gærmorgun. Það vildi þannig til að ég steig berfætt á eina þá skelfilegustu könguló sem ég hef augum litið! Fannst þetta nú heldur minna á sporðdreka í útliti en könguló, en ég ætla ekkert að athuga hvort svoleiðis fyrirbæri þrífist hér. *HROLLUR!* Nógu hrædd er ég við köngulærnar.
Ég sat bara í mínum mestu makindum úti á svölum (í syndinni) með Elmar á línunni og stend á fætur.
"Hmmm...hvaða drasl er þetta eiginlega fast undir fætinum á mér?" hugsa ég með mér þegar ég stíg í fótinn.
Ég hristi fótinn til og stíg aftur í hann...
"Hvaða helv...er þetta tappi af flösku búin að soga sig fastann á ilina á mér...hvað í andsk...!!??"
*BRAK OG BRESTIR* (hmm...þar fór tappakenningin fyrir lítið!)
" Plís... PLÍS, ekki vera padda!!!" ég svitna við tilhugsunina eina.
Ég mana mig upp í að kíkja undir fótinn. Viti menn...þar var ófreskan með dauðatak á ilinni (Á-iii) og greinilega búin undir baráttu uppá líf og dauða.
"OJJJJJ...GRRRR...SVITN...AARG...PÚFF!"
Ég hoppa fram og aftur um íbúðina, baðandi út höndum og fótum eins og lífið sjálft lægi við!
Allt kom fyrir ekki, skrímslið var ekki á leiðinni að sleppa takinu.
(Emmi ennþá á línunni og hefur ekki hugmynd hvað er eiginlega á seiði á hinum endanum)
Eftir mikla baráttu, dró ég andann djúpt og ákvað ég að myrða kvikindið með því að skella fætinum niður af öllu afli. SPLATT!
Svona eftir á að hyggja hefði ég betur átt að skarklappast út á svalir og ganga frá henni þar, því eftir situr stærðarinnar klessa í nýja fína teppinu okkar.
Eða hvað? Hefði þá ekki öll fjölskyldan hennar komið í jarðaförina? Herre gud!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Þetta er alveg brilljant frásögn og hin besta skemmtun, gott að þú gast ráðið kvikindið af dögum!
KnutZ
Uggghhhhh frekar krípí. Ég er nú vön öllum gerðum af kvikindum og kippi mér ekki mikið upp við að þurfa að splassa þau með skónum mínum en berfætt...huhummmm ALLT ANNAÐ MÁL jæks.
Kv, Fnaturinn hinn eini og sanni.
HAHAHAHA... ertu viss um að þetta hafi ekki bara verið krabbi :I
Ha,ha,ha .....eða kakkalakki þeir eru með annsi harða skel !!!!!!!Krönsj,krönsj ..jummí jummí !!!
Kv Svala gengið á Íslandi
Brakandi hjúpur og djúsí fylling. Mmmm...góður biti!
Hljómar eins og auglýsing fyrir eitthvað rosalegt góðgæti.
EWWWWWWW!
Skrifa ummæli