Sl. sunnudag skrapp ég með tveimur vinkonum til Delaware í jólagjafaleiðangur. Þær tvær mættu með meters langan innkaupalista og það átti sko heldur betur að VERSLA. Þær hlógu frá sér allt vit þegar þær sáu listann minn...bara nöfn.
"Ertu EKKI búin að ákveða hvað þú ætlar að gefa hverjum fyrir sig????!!!" Sögðu þær í hláturs kasti.
Það var kannski eitthvað til í þessu hjá þeim því ég kom tómhent heim eftir dagslanga verslunarferð. Sem var svo sem ágætt, því að plássið í Hybrid-inum hennar Ninnie var varla hannað fyrir tvær kellur í brjáluðum innkaupaleiðangri...hvað þá þrjár :) Þær náðu að klára hverja einustu gjöf á listunum sínum. Og á meðan hélt minn bara áfram að lengjast eftir því sem leið á daginn.
Á mánudeginum var ég farin að naga neglurnar af stressi...ekki búin að finna eina einustu gjöf! Ég segi það hver einustu jól að ég ætli að klára innkaupin fyrr næstu jól á eftir. Svo enda ég alltaf með því að vera meira og meira, eftir því sem árin líða, á síðustu stundu. Síðustu jól voru sendingarnar svo tæpar að fjölskydurnar fengu þá á hádegi á aðfangadag.
Svo að seinnipartinn plataði ég strákana með mér í nokkrar búðir. Og mér til mikillar ánægju datt ég niður á nokkrar jólagjafir...vííí!!!
Við hittum bekkjarfélaga Kristófers og mömmu hans, Jacquline, í hádegismat á miðvikudaginn. Hún stakk uppá austurlenskum stað sem er nánast hérna við hliðiná okkur, en ég hafði bara aldrei tekið eftir honum. Hann var ofboðslega illa merktur og leit út fyrir að vera voða lítill og púkó utanfrá. En vá hvað hann kom á óvart þegar maður var kominn inn. Ég hef aldrei verið mikið fyrir austurlenskan mat en þetta var sá besti sem ég hef smakkað. Kristófer og Carlson fengu sér m.a. kókos drykk sem þeir fengu borna fram í ferskum risa stórum kókoshnetum og það vakti mikla lukku.
Daginn eftir buðum við svo Carlson til okkar á "playdate". Veðrið var alveg yndislegt, met hiti m.v. árstíma. Strákarnir voru úti að leika sér mestmegnið af deginum. Ninnie kíkti líka við með strákana sína uppúr hádegi.
Ég náði að draga strákana inn, gegnvota eftir vatnsbyssu ævintýri, seinni partinn og fékk þá til að jólaföndra aðeins með mér.
Á föstudeginum ákváðum hittum við Ernu, Úlf og Grím. Þau búa alveg 1 og 1/2 tíma héðan frá okkur, svo að við fundum stað sem er svona mitt á milli okkar. Við vorum svo heppin að finna þar Rainforest Cafe sem er voðalega skemmtilegur staður sem er innréttaður sem skógur. Þarna var t.d. foss, risa górillur, fiðrildi, fílar og fiskar...reyndar allt gerfi nema fiskarnir. Svo með reglulegu millibili kom gerfi þrumuveður þarna inni og látið sem fílahjörð væri að ryðjast þar í gegn með tilheyrandi látum.
Á laugardeginum var svo loksins komið að Íslenskuskólanum. Kristófer var alveg að farast úr spenningi. Hann var vaknaður fyrir allar aldir og tilbúinn að fara. Við ákváðum bara að taka daginn snemma og leggja af stað um 9 leitið. Þá höfðum við smá tíma til að slæpast aðeins í borginni til 14. Þarna hittum við svo aftur Ernu og strákana, og líka pabba þeirra, Orra. Svo við kíktum bara á kaffihús í spjall á meðan Kristófer og Úlfur voru í "skólanum". Strákarnir voru voðalega ánægðir þegar við sóttum þá. Kristófer var bara hissa þegar hann sá okkur og sagði:
"OOOhhh. Þetta var svo stutt. Þetta var eins og 5 mínútur að líða".
En brandari dagsins var þegar við vorum að bíða eftir lestinni á lestarstöðinni. Þar vatt sér upp að okkur heimilislaus maður og spurði okkur hvort við ættum eitthvað klink handa sér. Ég fer að róta í vösunum. Eina sem ég átti var einn 25c peningur. Ég rétti honum hann og segi honum svo að meira ætti ég því miður ekki. Ég sá að Kristófer sárvorkenndi manninum svo að hann grípur inní og segir alvarlegur við manninn:
"Do you accept debit cards???"
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Skemmtilegur Debitkortbrandarinn!
Kveðja,
Högni
hehehehe bara fyndið ;o)
Æii krúttið :)
Er búin að bíða spennt eftir að heyra frá íslenskuskólanum. Gaman að það gekk svona vel.
Hvernig ganga síðan jólagjafainnkaupin núna?
Er þetta eitthvað að mjakast?
Já veistu, þetta er bara allt að koma. Náði að klára 4 "erfiðustu" gjafirnar um daginn. Þessar sem ég hef þrætt mollin þvert og endilangt eftir, fram á síðustu stundu.Það er voðalegur léttir.
Á bara gjafir eftir sem ég veit hvað verða. Svo ég er með gjafalista eftir...ekki bara nafnalista :)
Býst við að það verði bara ein ferð í mollið og þá verður það afgreitt...7...9...13!
Hvernig gengur annars hjá þér?
Skrifa ummæli