fimmtudagur, maí 19, 2005

Svindl svindl

Þetta var nú án efa, eitthvað mesta hneyksli í sögu Eurovision frá upphafi. Þegar það var alveg augljóst að hún Selma okkar ætti ekki aðeins að komast í aðalkeppnina, heldur átti hún að komast í eitt af efstu sætunum í henni. Greinilegt að þessi keppni byggist ekki á hæfileikum keppanda, heldur landfræðilegum staðsetningum þeirra. Við erum algjörlega í sjokki hérna og er algjörlega búið að eyðileggja helgina fyrir okkur... og eflaust margra annara dyggra lesanda þessa bloggs.

Andrea telur sig vera komin með lausn á þessu vandamáli, hún vill senda Jagúar í keppnina á næsta ári og ætlar sér ekki að horfa á keppnina aftur fyrr en það gerist.

Ég aftur á móti, vill flytja Ísland til austu evrópu og breyta nafninu á Íslandi í F.I.R Íslandíu. OG HANA NÚ!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyr heyr.....meiri bobbinga næst þá komumst við upp úr botninum. Kannski Jagúar geti sýnt smá skinn í leiðinni svona til við verðum pottþétt á þessu haha.
F.I.R Íslandía lengi lifi.